Smart Film

Persónuvernd með einum rofa.

Rafstýrð filma breytir gleri úr gegnsæju í skjámað á augabragði — fyrir fundarherbergi, móttökur, heilsugæslu, hótel og heimili.

Fundarherbergi með smart film á gleri
WhiteSLÖKKT
LITIR

Veldu lit og skiptu á milli ON og OFF.

Litahnapparnir nota sömu ljósmyndina í gagnsæri og skjámaðri útgáfu.

Sjö litir eru sýndir hér sem sjónræn prufa. Endanleg áferð er staðfest með sýni á gleri.

Veldu lit og prófaðu rofann — sama mynd helst föst á sínum stað.Fundarherbergi · Móttökur · Heilsugæsla · Hótel · Heimili
Í STUTTU MÁLI

Hvernig virkar filman?

Smart Film er PDLC-filma: án rafstraums dreifast kristallarnir og glerið verður skjámað; þegar kveikt er á straumi raðast þeir upp og glerið verður aftur gagnsætt. Í flestum verkefnum er filman sett á núverandi gler, en í nýsmíði er einnig hægt að vinna með lagskipt gler.

Stýring
Rofi, fjarstýring eða snjallkerfi eftir rýminu.
Gagnsæi
Í ON-stöðu heldur filman miklu ljósi; endanlegt útlit fer eftir lit, gleri og birtu.
Notkun
Hentar fyrir fundarherbergi, móttökur, heilsurými, hótel, heimili og glerveggi.
Skýringarmynd úr vörulista sem sýnir límfilmu og lagskipt smart film gler

Varanleg lausn, ekki græja.

Smart Film er tengd rafmagni hússins og stýrð með rofa, fjarstýringu eða snjallkerfi. Við sjáum um ráðgjöf, uppsetningu og tengingu í samstarfi við löggilta rafvirkja.

Fá tilboð
SkiptingSamstundis, innan við sekúnda
StýringRofi, fjarstýring eða snjallkerfi
LitirWhite, Black, Aqua, Amber, Pink, Red, Deep Blue
UppbyggingLímfilma eða lagskipt gler
UppsetningSett upp og tengt af okkar teymi
RaflagnirLöggiltir rafvirkjar
FÁ TILBOÐ

Fáðu tilboð í Smart Film.

Fylltu inn helstu upplýsingar um glerið. Við förum yfir málin og svörum með tilboði — yfirleitt innan tveggja virkra daga.

cm
cm
Opnar tölvupóstforritið þitt með upplýsingunum útfylltum — hengdu valdar myndir við áður en þú sendir.
„Fagmennska frá fyrsta fundi að uppsetningu. Ein ábyrgð og skýr samskipti allan tímann.“
ÍslandsstofaMarkaðsstjóri
Algengar spurningar
Hvernig virkar smart film?

Filman er skjámuð þegar slökkt er og gegnsæ þegar kveikt er — skipt með rofa, fjarstýringu eða snjallstýringu á augabragði.

Þarf rafvirkja fyrir smart film?

Já. Filman er tengd við spennubreyti og rofa; við sjáum um tenginguna með löggiltum rafvirkja.

Er hægt að setja smart film á gler sem er til staðar?

Já. Sjálflímandi útgáfan er lögð á glerið sem þegar er í rýminu — fundarherbergi, skrifstofur, baðherbergi og móttökur.