Um okkur
Verkstæði í Mosfellsbæ sem hannar, smíðar og setur upp.
Preiss Workshop er verkstæði að Álafossvegi 27C í Mosfellsbæ. Við teiknum verkin í þrívídd, fræsum á CNC, smíðum, húðum og göngum frá á verkstæðinu og setjum upp sjálf — svo teikningin sem þú samþykkir er hluturinn sem er settur upp.
Við höfum unnið við uppsetningu vínylfilma síðan 2012 og sérhæft okkur í interior filmum síðan 2018. Meðal verkkaupa eru Hótel Keflavík, Íslandsstofa, SFS og Colas, og við smíðum reglulega eftir teikningum arkitekta og innanhússhönnuða, meðal annars BK decor.
Veislusalur — gyllt kassettuloft, marmarafilmur og lýsing
Fagsvið
01Hönnun og tækniteikning
02Mæling og verkfræðileg útfærsla
03CNC-framleiðsla
04Trésmíði
05Málmsmíði
06Yfirborðsfrágangur
07Filmur og gler
08Lýsing
09Uppsetning
10Samhæfing iðnaðarmanna
Þegar verk kallar á fleiri iðngreinar stýrum við því og fáum löggilta smiði, pípara og rafvirkja til liðs við okkur. Þú átt einn tengilið frá fyrstu mælingu að afhendingu.