Skrifstofa Sidekick er opin og björt — en fundarherbergin þurftu næði án þess að loka birtuna úti. Við settum upp litríkar prentfilmur sem gefa hverju rými sinn karakter og halda glerinu léttu.
Filmurnar eru prentaðar í litum og formum sem spila með birtunni: þéttir litafletir þar sem næðið skiptir máli, opnara þar sem ljósið á að flæða í gegn.
Filman er skorin eftir málsettri teikningu og sett upp á staðnum af okkar teymi.
Preiss Workshop — Reykjavík


