Kjallaraíbúðin var í upprunalegu horfi: teppalagður stigi með stálhandriði, hvítflísalagt baðherbergi og slitnir fletir. Við rifum niður í steypu og byggðum upp á nýtt með nýjum léttveggjum, steinull og gólfhita.
Baðherbergið er þungamiðjan: terracotta-flísar á vegg, grá stórflísa-sturta með svörtum blöndunartækjum og LED-lýst sylla, dökkir skápar með messinghöldum og innfelld lýsing sem strýkur flísarnar. Stiginn fékk þiljaðan vegg, tepparenning og gráa fataskápa í einni heild; gangurinn nýjar dökkgráar hurðir á eikargólfi.
Í verkefninu eru myndir af hverju stigi: íbúðin eins og hún var, niðurrifið, uppbyggingin og fullbúið rými.
Preiss Workshop — Reykjavík


