Húsið kom til okkar sem berir bjálkaveggir, grænt gólf og gamall furustigi. Verkefnið var að innrétta það í heild — ekki eitt herbergi í einu heldur eina heild þar sem eldhús, stigi, baðherbergi og skápar tala saman.
Rimlaveggurinn, sex metra langur, tengir hæðirnar og felur stigann að hluta. Stiginn fékk LED-lýst þrep, CNC-fræsta flísaklæðningu á vegginn og askhandrið sem var mótað í þrívídd. Eldhúsið fékk eyju og innfellda lýsingu, baðherbergin steinflísar, marmarafilmu og svartar glersturtur.
Myndirnar í verkefninu sýna hvert skref: bjálkaveggina 2022, rimlaveggurinn í vinnslu og fullbúið húsið.
Preiss Workshop — Reykjavík

