← Öll verk









1 / 10
Eftir — slétt Clipso-loft með innfelldum ljósum og hengiljósum










Strekkiloft · hljóðvist · lýsing
Clipso strekkiloft í stofu og eldhúsi
Loftið yfir stofu og eldhúsi var klætt borðum með sýnilegum samskeytum og hljóðvistin var slæm. Við tókum borðin niður, settum steinull á milli sperranna til hljóðdempunar og smíðuðum timburgrind fyrir lýsinguna: festingar fyrir innfelld og hangandi ljós og brautir fyrir stillanlega kastara. Allt var síðan klætt með svörtum undirdúk svo bakgrunnurinn yrði einsleitur og dökkur og ekkert skíni í gegnum hvíta dúkinn. Að lokum var Clipso-dúkurinn strekktur í prófíla við loftbrún — eitt slétt, hvítt loft án samskeyta þar sem ljósin ganga í gegn. Við setjum Clipso-loft upp sjálf; efnið kemur frá umboðsaðila Clipso á Íslandi.
EfniClipso-dúkur, steinull, timburgrind, svartur undirdúkur, ljósafestingar
UmfangNiðurrif · Hljóðvist · Lýsing · Uppsetning
RýmiEinkaheimili
Eiga svipað verkefni í huga?